Birgir og Iðunn, foreldrar Bryndísar Klöru, heimsóttu Verzlunarskóla Íslands í gær þar sem Góðgerðarráð nemendafélagsins (GVÍ) afhenti þeim veglega fjárhæð sem safnaðist í Minningarsjóð Bryndísar Klöru. Um er að ræða 7,5 milljónir króna sem GVÍ safnaði með góðgerðartónleikum í Háskólabíói til minningar um Bryndísi.
Tónleikarnir fóru fram 4. október 2024 og voru skipulagðir af skólafélögum Bryndísar. Með liðsinni frábærra listamanna og sjálfboðaliða, tókst þeim að skapa yndislega fallega og ógleymanlega kvöldstund einungis fjórum vikum eftir fráfall Bryndísar Klöru.
Minningarsjóður Bryndísar Klöru er og verður í ævarandi þakkarskuld við GVÍ, nemendur Verzlunarskóla Íslands og starfsfólk skólans fyrir þann ólýsanlega styrk og samhug sem þau hafa sýnt allt frá byrjun. Án þeirra hefði bleika bylgjan ekki orðið sú stóra kærleikshreyfing sem hún er í dag.
