Alls bárust 23 umsóknir í sjóðinn og í ár hljóta 5 verkefni styrk úr sjóðnum og eru þau eftirfarandi:
Hjálparsími Rauða krossins – 1717
Hjálparsíminn 1717 og netspjallið 1717.is veita virka hlustun, sálrænan stuðning og ráðgjöf um úrræði vegna m.a. kvíða, þunglyndis, ofbeldis, sjálfsvígshugsana, félagslegrar einangrunar og annarra ástæðna. Áherslan er skýr: ekkert vandamál er of stórt eða of lítið. 1717 er opið allan sólarhringinn, alla daga ársins, einnig á hátíðisdögum, og er fyrir marga fyrsta skrefið í að opna á vanda eða vanlíðan.
Menntafléttan – tvö námskeið (skólaárið 2026–2027)
1) Erfið og krefjandi hegðun barna og unglinga
2) Lausnahringurinn
Menntafléttan er samstarfsverkefni á sviði menntunar sem miðar að því að efla faglega hæfni kennara, leiðbeinenda og annars fagfólks sem starfar með börnum og ungmennum. Styrkurinn er ætlaður til þróunar og framkvæmdar námskeiða skólaárið 2026-2027. Með styrknum verður unnt að bjóða námskeiðin endurgjaldslaust og tryggja að kennarar, leiðbeinendur og annað starfsfólk á öllum skólastigum og í frístundastarfi um allt land, hafi aðgengi að faglegri þekkingu og stuðningi.
Sjúkást – forvarnarverkefni Stígamóta fyrir ungt fólk
Sjúkást er fræðslu- og forvarnarverkefni sem hefur það að markmiði að vera forvörn gegn hvers konar ofbeldi í samböndum ungmenna. Markhópurinn er ungt fólk á aldrinum 13–25 ára. Styrkurinn er hugsaður til sérstakrar herferðar þar sem kærleikur verður hafður að leiðarljósi til að styrkja heilbrigð mörk, virðingu og öryggi í samskiptum.
Samkennd í samfélaginu
Samkennd í samfélaginu er þróunar- og forvarnarverkefni sem hefur það markmið að efla samkennd, virðingu og samfélagslega ábyrgð í íslensku samfélagi með því að gera vandað námsefni í félags-, tilfinninga- og siðferðinámi (SEELearning) aðgengilegt á íslensku. Með þessu er mætt brýnni þörf fyrir faglegt íslenskt námsefni sem styður við farsæld, forvarnir og heilbrigð samskipti og leggur grunn að bættu og öruggara samfélagi til framtíðar.
Hjólaverkefni Vinasetursins
Veittur er styrkur til kaupa á fjallahjólum fyrir börn og unglinga sem eru í helgardvöl í Vinasetrinu. Markmiðið með hjólaferðunum er að efla þrautseigju, þol, auka gleði og sjálfstraust barnanna sem þangað sækja. Vinasetrið er samfélagslegt úrræði sem starfar án hagnaðarsjónarmiða og hefur það að markmiði að bæta lífsgæði barna og ungmenna sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður. Starfsemin fer fram í Kaldárseli í Hafnarfirði og þjónustar börn á aldrinum um 6–15 ára sem vísað er til Vinasetursins af félagsráðgjöfum barnaverndar og félagsþjónustum sveitarfélaga.
Minningarsjóður Bryndísar Klöru þakkar öllum umsækjendum fyrir vandaðar umsóknir og þeirra verðugu verkefni.