Í tengslum við Ólympíuhlaup ÍSÍ ákváðu nemendur Vatnsendaskóla að láta gott af sér leiða og söfnuðu áheitum til styrktar Minningarsjóði Bryndísar Klöru.
Nemendur fengu að kjósa málefnið og tóku um 550 nemendur í 1.-10. bekk skólans þátt í viðburðinum en alls voru hlaupnir rúmlega 1.000 kílómetrar.
Minningarsjóður Bryndísar Klöru þakkar nemendum, starfsfólki og foreldrum barna í Vatnsendaskóla innilega fyrir þetta fallega og dýrmæta framtak.