Skólafélagar Bryndísar Klöru héldu áfram að minnast hennar með stuðningi við Minningarsjóðinn.

Heildarsöfnunin Verzlinga fyrir Minningarsjóð Bryndísar Klöru hefur alls náð 8.740.937 krónum en sú upphæð safnaðist meðal annars með öðrum viðburðum, svo sem minningartónleikum sem haldnir voru á síðastliðnu ári.

Vikan einkenndist af fjölbreyttum viðburðum og áskorunum þar sem nemendur og kennarar tóku virkan þátt í söfnuninni.

Í fótboltaleiknum tóku meðal annars þátt Gummi Ben, Króli, Júlí Heiðar, Þórdís Björk, Sandra Barilli, Patrekur Jamie og Gói Sportrönd. Með stuðningi frá Víking fékk skólinn lánuð stór mörk fyrir leikinn og í hálfleik voru seldar pizzur frá Domino’s til að auka söfnunarféð enn frekar.

Bílaumboðið Askja lánaði jafnframt fallega merkta glæsibifreið fyrir fjóra nemendur á þriðja ári sem keyrðu hringferð í kringum Ísland á meðan góðgerðarvikunni stóð.

Takk elsku Verzlingar fyrir að vera stórriddarar í minningu Bryndísar

🩷

No items found.