Markmið sumarsins var hvort tveggja áframhaldandi stuðningur við opnun Bryndísarhlíðar ásamt því að setja kærleika, samkennd og samtal á dagskrá.
Kærleiksbragðarefur Huppu var innblásinn af Bryndísi Klöru og hennar uppáhalds bragðaref: kökudeigi, Oreo og hindberjum.
"Ísbíltúrinn er stór hluti af íslensku samfélagi – staður þar sem vinir og fjölskyldur koma saman, njóta samvista og eiga samtal. Með þessu viljum við bæði styðja verkefnið fjárhagslega og efla þessi mikilvægu tengsl." - Telma Österby Finnsdóttir markaðs- og verkefnastjóri Huppu
Riddarar kærleikans og Minningarsjóður Bryndísar Klöru hafa unnið saman að opnun Bryndísarhlíðar í rúmt ár og virkjað þann mikla kærleikskraft sem býr í íslensku samfélagi. Markmið Minningarsjóðs Bryndísar Klöru er að safna 200 milljónum fyrir Bryndísarhlíð sem er að takast með stuðningi bæði fyrirtækja og einstaklinga. Með þátttöku Huppu fékk söfnunin nú öflugan stuðning til að ná lokamarkmiði sínu.
Riddarar kærleikans þakkar öllum þeim sem fóru í ísbíltúr í Huppu í sumar og studdu þannig við opnun Bryndísarhlíðar.
„Á rúmu ári hefur samfélagið sameinast um verkefnið með einstökum hætti. Nú sjáum við árangurinn verða að veruleika með opnun Bryndísarhlíðar. Þetta verkefni hefði aldrei orðið að veruleika nema vegna samvinnu svo margra – einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Það er krafturinn í því að standa saman". - Riddarar kærleikans
Bryndísarhlíð verður til húsa í Gamla Kennaraskólanum við Laufásveg 81 í Reykjavík. Þar verður samþætt áfalla- og ofbeldismóttaka Landspítala þar sem lykilþjónusta verður veitt undir sama þaki.
Í Bryndísarhlíð verður meðal annars ný ofbeldismóttaka fyrir börn og ungmenni ásamt sérhæfðum teymum sem sinna áfallameðferð og stuðningi við þolendur ofbeldis. Markmiðið er að börn, ungmenni og fjölskyldur fái skjóta, samræmda og faglega heilbrigðisþjónustu án þess að þurfa að leita á milli ólíkra staða og kerfa.
Hægt er styðja við Bryndísarhlíð fjárframlögum beint inn á bankareikning Minningarsjóðsins - banki: 515-14-171717, kennitala: 430924-0600