Fimmtudaginn 19. mars fór fram sérstök samkoma á Bessastöðum þar sem Minningarsjóður Bryndísar Klöru og hreyfingin Riddarar kærleikans komu saman með forseta Íslands, frú Höllu Tómasdóttur.

Sérstök stund var þegar forseti Íslands tók á móti heiðursviðurkenningunni Stórriddari kærleikans. Viðurkenningin er veitt fyrir ómetanlegan stuðning hennar sem verndari Minningarsjóðsins og þá einlægu forystu sem hún hefur sýnt frá fyrstu stundu.

Samveran á Bessastöðum einkenndist af hlýju og samstöðu. Hún var táknræn áminning um allt það sem hefur áorkast í vegferðinni að kærleiksríkara og öruggara samfélagi fyrir börn og ungmenni.

Við erum ævinlega þakklát þeim mikla fjölda einstaklinga og fyrirtækja sem hafa styrkt og stutt við sjóðinn frá upphafi.

Minning Bryndísar Klöru lifir áfram í hverju verki og hverju skrefi sem stigið er að sameiginlegu markmiði okkar: að gera kærleikann að öflugasta aflinu í samfélaginu.

Látum kærleikann sigra.

No items found.