Thorvaldsensfélagið fagnar 150 ára afmæli um þessar mundir og er elsta starfandi kvenfélagið í Reykjavík.
Guðrún Ragnars, formaður Thorvaldsensfélagsins, afhenti Vigdísi Eddu, litlu systur Bryndísar Klöru, þennan veglega styrk á fallegri jólastund félagsins sem haldin var á Hallveigarstöðum þann 8. desember.
Við hjá Minningarsjóði Bryndísar Klöru og Riddurum kærleikans erum ákaflega þakklát Thorvaldsensfélaginu fyrir þeirra mikla rausnarskap. Þessi styrkur er stórt skref í áttinni að opnun Bryndísarhlíðar sem verður sérstakt úrræði fyrir börn og ungmenni sem eru þolendur ofbeldis.
