Kærleikskort Minningarsjóðs Bryndísar Klöru eru nú fáanleg í öllum Lyfju-verslunum á höfuðborgarsvæðinu til 14. júní.
Kortin kosta 1.500 krónur og rennur allt söluverð til uppbyggingar Bryndísarhlíðar.
Kortin eru hönnuð af hjartasnillingunum, Tobbu og Sæþóri í Farva, og eru hugsuð sem falleg leið til að gleðja einhvern sem hefur náð áfanga, staðið sig vel eða einfaldlega á skilið hlý orð.
Á kortinu stendur: „Þú átt skilið kærleiksorðu!“ og með kortinu fylgir barmmerkið "Riddari kærleikans" - fallegt tákn um kærleika, hugrekki og þá ákvörðun að mæta öðrum með hlýju, virðingu og vinsemd.
Kærleikskortin henta vel við útskriftir, afmæli, aðra stóra og smáa áfanga og tímamót. Líka þegar við viljum minna einhvern á að hann skipti máli.
Allt söluverð kortanna rennur óskipt til uppbyggingar Bryndísarhlíðar.
Kærleikskortin eru fáanleg í öllum Lyfju-verslunum á höfuðborgarsvæðinu til 14. júní.
Verð: 1.500 kr.