Mánudaginn 25. maí mætast Breiðablik og FH í Bestu deild kvenna á Kópavogsvelli. Að því tilefni ætlum við að blása til viðburðar til styrktar Minningarsjóð Bryndísar Klöru.

Þetta verður miklu meira en bara fótboltaleikur. Þetta verður kvöld þar sem samfélagið kemur saman til að heiðra minningu Bryndísar Klöru sem var iðkandi hjá Breiðabliki og snerti hjörtu svo margra💗Nú fyllum Kópavogsvöll af kærleika og hvetjum alla, ekki bara Blika eða FH-inga til að mæta, klæðast bleiku og taka þátt í þessari mikilvægu stund með okkur.

💗Stelpurnar okkar munu leika í bleikum Blikatreyjum sem sérstaklega voru framleiddar fyrir þennan viðburð. Treyjurnar verða einnig seldar í takmörkuðu magni og verða kynntar nánar á næstu dögum💗

Allur ágóði aðgöngumiða, treyjusölu og annars varnings rennur óskiptur í Minningarsjóð Bryndísar Klöru.

Dagskrá kvöldsins verður kynnt nánar á næstu dögum en hér má sjá fyrstu drög að kvöldinu:

Svæðið opnar kl. 17:30

🎶 Páll Óskar, Kristmundur Axel og Húbba Búbba

🍔 Hamborgarar á grillinu og stemning á svæðinu

⚽️ Leikur Breiðabliks og FH hefst Kl. 19:15

Við hvetjum alla til að mæta í bleiku, taka með sér vini og fjölskyldu og hjálpa okkur að fylla Kópavogsvöll af kærleika 💗

💗 EITT FYIR KÆRLEIKANN 💗

Miðasala: https://stubb.is/events/bp8Wjb

Facebook viðburðinn: https://fb.me/e/4DN2AgluE

Aðrir viðburðir

Sameinumst fyrir jákvæðum breytingum