Fóstbræður bjóða til einstakrar tónlistar- og kyrrðarstundar í anda Allra sálna messu, þar sem ljúfir tónar leiða hugann að fegurð lífsins, kærleikanum og minningum um ástvini, bæði lífs og liðinna.
Tónleikarnir í ár eru tileinkaðir minningu Bryndísar Klöru, en fráfall hennar snerti Fóstbræður djúpt. Faðir hennar, Birgir Karl Óskarsson, er kær söngbróðir og verður meðal einsöngvara á tónleikunum.
Sérstakir gestir eru félagar í hljómsveitinni Góss, sem munu ásamt kórnum skapa einstaka tónlistarupplifun.
Efnisskráin spannar innlenda og erlenda tónlist, veraldlega jafnt sem trúarlega og er óður til lífsins, ljóssins og kærleikans. Tónleikarnir eru stund til minningar og þakklætis, en jafnframt hvatning til aukins kærleika, bræðralags og gæsku, eins og segir í ljóðlínunum:
„Hver vinur annan örmum vefur
og unga blómið krónu fær,
þá dansar allt sem hjartað hefur
er hörpu sína vorið slær.“
Stjórnandi kórsins er Árni Harðarson og meðleikari Tómas Guðni Eggertsson, organisti og píanisti.
Miðasala fer fram á Tix.is og miðaverð er 7.000 kr. Allur ágóði tónleikanna rennur í Minningarsjóð Bryndísar Klöru.
Grunnskólinn í Hveragerði
